Eins skringilega og það hljómar er okkar áhugamál bókhald og viljum leggja okkar af mörkum til að koma fjármálunum úr rassvasanum í gott form.
Við vitum að það getur verið erfitt að halda mörgum boltum á lofti og því getur verið gott að hafa fagaðila sér innan handar.
Rassvasi ehf er í eigu Evu Michelsen sem er með MSc í stjórnun og stefnumótun, BSc í viðskiptafræði og viðurkenndur bókari með rúmlega 10 ára reynslu af rekstri fyrirtækja og bókhaldi.