Námskeiðslýsing
Námskeiðinu er skipt niður í þrjá hluta:
Hluti I – Bókhaldslyklar og reglur um færslu bókhalds
- Farið er yfir helstu lög og reglur
- Farið yfir bókhaldslykla og stillingar
- Hvar má finna upplýsingar hjá RSK og Payday
- Q&A
Stutt 5 mín pása
Hluti II – Útgjöld, virðisaukaskattur, annarskonar kostnaður
- Farið yfir bókanir á útgjöldum og annarskonar kostnaðarliðum
- Virðisaukaskattur og vsk skýrslur
- Laun og launatengd gjöld
- Fjárhagur og bókanir í fjárhag
- Sýnidæmi
- Q&A
Stutt 5 mín pása
Hluti III – Afstemmingar
- Bankaafstemming
- Kreditkort
- Lánadrottnar
- Skuldunautar
- Launatengd gjöld
- Sýnidæmi
- Q&A
Nemendur eru hvattir til að undirbúa sig og vera tilbúnir með spurningar og eða dæmi sem þau vilja fá leyst
Námskeiðið er sniðið fyrir notendur Payday og taka sýnidæmi mið af því.
Hvar: Rafrænt
Tími: 9:00 – 12:00
Verð: 14.900 kr pr. Þátttakanda
Þátttökuskilyrði: Lágmark 3 nemendur, hámark 20 nemendur
Fyrir hverja: Þá sem eru að stíga sín fyrstu skref í færslu á eigin bókhaldi.
Leiðbeinandi: Eva Michelsen, eigandi Rassvasa ehf., viðskiptafræðingur og viðurkenndur bókari
Upptaka: Námskeiðið er tekið upp og er upptöku og glærum deilt með þátttakendum að námskeiði loknu gegnum wetransfer hlekk.
Greiðsla: Reikningur er sendur og krafa birt í heimabanka. Greiðsla þarf að berast áður en námskeið hefst.
Annað: Þeir sem hafa ekki tök á að vera með live geta fengið upptöku og glærur senda eftir námskeiðið.
Í flestum tilvikum geta einstaklingar sótt um endurgreiðslu hjá sínu stéttarfélagi.